17nóvember

Taser byssur og Leikskólapláss!!

Var að fá að heyra frá dagmömmunni minni að Angela fengi líklegast ekki pláss fyrr en með vorinu!!! Já held ekki! Ég er í fríi á mánudaginn og þá fá þessar kellingar að heyra það! Hvernig á ég að geta ein endalaust borgað dagmömmu 75.þúsund og þarf svo að bíða til 10. hvers mánaðar til að fá fokkin endurgreitt!!!! Og það er sko fáránlega lág upphæð sem á reyndar að hækka um nokkra hundrað kalla um áramótin en á móti kemur að dagmæðurnar eru að hugsa um að hækka verðið hjá sér uppí 90.þús!!! Hvað er að??? Ég sé fram á að þurfa líkalegast bara að hætta að vinna og breytast í aumingja svo að ég geti séð bara um barnið mitt sjálf!!!! Ótrúlegt ekki satt?? Að maður fái ekki þá aðstoð og þjónustu sem maður þarf til að geta hugsað um börnin sín!!! Fáránlegt samfélag sem við búum í!! Það skíta ekki allir peningum sko!!!!! Kannski kominn tími til að fólkið sem "stjórnar" á þessu skeri fari að vakna og sjá hvar vandamálin eru.. þau eru ekki í felum í orukuveitunni!!! Fávitar!!!!

Svo er málið með þessar Taser byssur sem lögreglan vill fá í notkun, ég fyrir mitt leiti er alveg 100% á móti þessum tólum. Maðurinn dó í kjölfar stuðsins sem hann fékk frá byssunni. Og það hafa líka fleiri. Þó svo að það sé ekki hægt að kenna byssunni alfarið um að þá getur ekki verið hollt fyrir líkamann að fá svona stuð. Ég meina hjartað fær auðvitað sjokk og ef það er kannski ekki alveg í góðu lagi getur það bara alveg stoppað og manneskjan hreinlega bara dáið. Að mínu mati dó maðurinn í kanadi af völdum byssunnar sem sögð er vera með mannlegri "tólum" sem lögreglan getur notað.
Afhverju ekki bara að taka skrefið til fulls og útveg lögreglunni okkar alvöru byssur svo þeir líti ekki út fyrir að vera svona miklar "rent-a-cops". Haldiði að þeir yrðu ekki glaðir með svoleiðis dót í jólapakkanum???
17. nóvember 2007 klukkan 20:52
Vallý Einars
Engin athugasemd
04nóvember

Halloween og fleira :)

Já ég veit að ég er sko alls ekkert að standa mig hérna...
En já það hefur ýmislegt gerst núna í síðustu viku. Ég fór í halloween party um síðustu helgi með Sigurrós og Tobbunni. Ég fór sem little sexy devil, Sigurrós sem nurse Betty og Tobban sem Moulin Rouge Hóra :)
Geggjað flottar skvísur þar á ferð. Fengum frekar mikla athygli þegar í bæinn var komið, alls konar fólk að taka myndir af okkur og svona.. sumir fengu meðal annars sprautu í rassinn frá Nurse Betty :) Hún var nú samt dugleg að halda síliconinu í djöfla túttunum :) Var alltaf að bæta í :) hahahahaha....
Svo á miðvikudaginn var síðasti dagurinn í vinnunni þó svo að ég komi nú eitthvað til með að vera svona auka manneskja þar til ég fæ aðra vinnum en það er alveg hreint ótrúlegt hvað það tekur marga laaaaaangan tíma að svara umsóknum!!!!
Angela Huld er alltaf hreint lasin þessa dagana... um daginn var það gin og klaufaveiki og núna streptakokkar !!! það á ekki af henni að ganga. Komin á pensilin í 3ja skipti á 6 mánuðum. Ég er ekkert alltof sátt við það sko ....
Jæja ætla að fara að gefa henni eitthvað að borða svo hún geti farið að leggja sig bráðum :)
04. nóvember 2007 klukkan 10:38
Vallý Einars
2 athugasemdir

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Demanturinn minn

Könnun

Hvort er betra?