22október
allt ađ gerast... eđa hvađ???
Já, allt virðist einhvern veginn ganga svolítið upp þessa dagana. Búin að missa 21.kg á 93 dögum bara með því að borða :) ótrúlegt sko! Það segja mér allir hversu vel ég lít út og allt það en samt á ég svo erfitt með að sjá það sjálf og það er eitthvað sem ég á svo erfitt með að sætta mig við. Þó ég finni vel árangurinn þá bara sé ég hann ekki þegar ég horfi í spegilinn. Það er svoldið að trufla mig. Líka farin að kvíða aðeins fyrir jólunum þar sem ég held eða ég veit öllu heldur að ég er alls ekki tilbúin að kveðja jólamatinn minn! Geðveiki ég veit en samt er þetta bara satt. Alveg eins og alkólistinn og dópistinn þá hugsar matarfíkillinn bara um dópið sitt :) hahaha .. fyndið að tala um mat sem fíkniefni en í mínu tilviki er hann það !!!Fór um helgina að djamma með Helenu og Jóhönnu sem ég hef bara ekki gert í alltof langan tíma og það var geggjað gaman. Tobba kom með okkur og vá hvað það var æðislegt að hafa þær allar saman. Verðum að endurtaka þetta aftur fljótlega :)
Angela er svo komin með gin- og klaufaveiki og núna verðum við bara heima í sóttkví í 3-5 daga. ömurlegt þar sem ég hætti í vinnunni minni í næstu viku!!! vona að hún verði bara fljót að ná þessu úr sér en það er svo misjafnt hvernig þessi veirusýking fer í þau.