20ágúst

Skaginn og menningarnótt

Ég ákvað að skella mér uppá Akranes um helgina til að hitta pabba minn og Carmen og auðvitað litla bróðir :) Hann er svo mikill gaur að það hálfa væri nú alveg nóg.
Angela var alveg í essinu sínu þegar tónlist var sett á og dansaði af sér fæturnar nánast. Mikið var nú gott að sjá þau aðeins.

Um kvöldið eftir að ég var komin heim, skellti ég mér í bæinn til að hitta hana Tobbu mína og vini hennar sem voru allt strákar, og það hver öðrum kjánalegri ;) Við kíktum á Amsterdam þar sem fólkið fékk sér eitthvað að drekka en ég var auðvitað bara í kókinu :)
Mikið leið mér líka vel þegar ég vaknaði daginn eftir. Eftir Amsterdam fórum við á Dubliners en þá vorum við nú bara 3 eftir, ég, Tobba og Biggi.
Á leiðinni að bílnum, ég var svo heppinn og náði mér í bílastæði við Iðnskólann, á skólavörðustígnum sáum við engann annan en Gael Garcia Barnel!!! Guð hvað drengurinn er sætur en OMG hvað hann er mikill tittur!! hahaha..

Á sunnudaginn kom svo fyrsta tönnin hennar Angelu í ljós :) mikið varð ég nú glöð. Þær eru samt alveg 2 á leiðinni í viðbót sem ég er búin að sjá.

jæja kominn tími á lunchinn minn

heyrumst
20. ágúst 2007 klukkan 14:15
Vallý Einars
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Demanturinn minn

Könnun

Hvort er betra?