16júlí
Tími til kominn!!
Jæja er ekki kominn tími á smá update??Ef við byrjum nú á byrjuninni þá leið júní svolítið hratt. Hulda og Almar giftu sig 2.júní og var brúðkaupið fallegt í alla staði. Kirkjan, söngurinn, veislan ... bara allt var fullkomið :) Helgina eftir brúðkaupið skelltum við okkur til Húsavíkur og eyddum helginni þar. 17.júní var æðislegur. Fór með Angelu niður í bæ og hún fékk blöðru, fána og rellu. Svo ekki sé talað um að stelpu skottið fékk líka að smakka eina al-íslenska pulsu ;) oh, hvað henni fannst hún góð. Dagurinn var alveg hreint frábær bara.
Í lok júní var svo komið að ættarmótinu. Við vorum komnar norður í Dæli rétt eftir hádegi á föstudeginum og það var alveg steik. Það var svo heitt að maður nánast bráðnaði bara á staðnum. Föstudagskvöldið var bara rólegt og mjög skemmtilegt. Fjörið byrjaði svo á laugardeginum. Við vorum eiginlega plötuð til að fara í fótbolta þar sem það var keppni á milli systkina, þ.e. systkina afa. Þannig að 8 fullorðnir einstaklingar úr minni fjölskyldu, aðallega unga fólkið fór í fótbolta keppni. Vil taka það fram að við vorum eina liðið sem var að mestu skipað stelpum en það voru einungis 2 strákar í okkar liði. Ég verð nú að viðurkenna að ég átti nokkra góða kafla í leikjunum sko ;) fékk tattoo eftir boltann á kálfann og svo tæklaði ég frænda minn all svakalega að hann var ekki ennþá búinn að jafna sig á sjokkinu daginn eftir :) Davíð kallaði mig skriðdrekann í vörninni og að ég væri best geymd í enska boltanum bara. Held hann hafi verið pínu hræddur við mig stundum.
Laugardagskvöldið var líka rosa skemmtilegt. Við fengum okkur svona aðeins í aðra tánna eftir að krakkarnir voru sofnaðir og sumir stigu fallegan tele-tubbies dans :) og aðrir urðu fullari en hægt er að lýsa.
Vorum komnar frekar snemma heim á sunnudeginum og fegnar að sleppa við þessa svakalegu umferð sem kom í bæinn seinna um kvöldið :)
hef þetta ekki lengra núna