26maí

the Hardest thing...

Ég veit ég hef ekki verið duglegust að blogga en það hefur bara ekkert merkilegt verið að frétta, fyrr en núna kannski :)

Laugardagurinn 19.maí: Við byrjuðum á því að sækja Huldu um klukkan 10:30. Klæddum gæsina í búninginn, skáluðum í kampavín og brunuðum af stað. Fyrsta stopp var magadanshúsið þar sem gæsin var klædd í svona svakalega fínan Bollywood-búning en klaufinn hún Hulda steig alltaf á pilsið svo að hún var látin skipta um og fékk ennþá flottari búning. Við spreyttum okkur í bæði Bollywood dansi og svo magadansi og skemmtum okkur konunglega :) en shitturinn hvað þetta tók á. Það rann af okkur á no time svo að þegar tíminn var búinn var farið á The Trunk Bar :) híhíhíhí...  Næsta stopp var ÁTVR þar sem barinn þarfnaðist áfyllingar og svo var haldið á Subway til að fæða gæsina því ekki mátti hún drepast um miðjan dag. Eftir að hafa fengið okkur aðeins í svanginn var ferðinni heitið í Baðhúsið þar sem gæsin var send í heilnudd.. umm!! Á meðan hún var að slaka aðeins á brunuðum við hinar heim til foreldra Stefaníu og súkkulaðihúðuðum jarðarber og svo var brunað aftur upp í baðhús þar sem við hittum Huldu í pottinum með jarðarberin og meira Kampavín. Tókum okkur góðan tíma í að taka okkur til og gera okkur sætar fyrir kvöldið. Náðum heldur betur að koma gæsinni á óvart með útsýnisflugi með öðrum stegg :) úff hvað hún var ekki til í þetta til að byrja með en þegar þau voru lent aftur hafið hún auðvitað skemmt sér ógeðslega vel :) Fórum heim til Stefaníu á smá fordrykk áður en við fórum út að borða á Caruso. Rosalega góður matur og auðvitað fékk Gæsin typpaís í eftir rétt :) Hélt í alvöru að hún myndi pissa í sig af hlátri þegar hún fattaði hvað þetta var :)
Þar sem við höfðum svo langan tíma það til að næsta mál á dagskrá yrði fórum við bara aftur heim til Stefaníu og drukkum aðeins meira :) Svo var gæsin dregin niður í miðbæ, nánar tiltekið á NASA þar sem uppáhalds hljómsveitin hennar var með ball. Sálin toppaði kvöldið á annars mjög vel heppnuðum degi:)

Svo á sunnudeginum þegar ég vakanaði var hún Angela mín ekkert alltof hress svo á mánudeginum fór ég með hana til læknis sem sagði að hún væri komin með eyrnabólgu. Hún fékk lyf við því en á fimmtudaginn var hún miklu verri, hélt engu niðri og var komin með 39. stiga hita. Hringdi á lækni sem sagði mér að fara með hana á bráðamóttöku barna sem ég gerði. Hún var höfð inni um nóttina með vökva í æð þar sem hún var að þorna upp greyið mitt litla :( mikið fann ég til með henni og ekkert smá erfitt að horfa á barnið sitt svona lasið. Þó svo að þetta hafi ekki verið alvarlegra en vökvaskortur get ég ekki ímyndað mér hversu erfitt sé að horfa upp á barnið sitt með alvarlegan sjúkdóm. Þetta var nógu erfitt. Sem betur fer jafnaði hún sig fljótt og við fengum að fara heim um morguninn.

that´s all..

26. maí 2007 klukkan 13:05
Vallý Einars
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Demanturinn minn

Könnun

Hvort er betra?