"Mannréttindi fyrir níðinga"??
Ég sat, eins og flestir sem ég þekki, og horfði á Kompás þáttinn síðasliðið sunnudagskvöld. Það kom mér verulega á óvart að Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníðingur, skuli fá að afplána hluta dómsins á Vernd. Hvað þá að hann hafi fengið að vinna innan um tölvur og hafi haft aðgang að interneti á Vernd.Þetta gerði mig eiginlega reiða. Þar sem ég er nýbökuð móðir er ég alveg á þeirri skoðun að ég vil ekki sjá þessa ógeðslegu perra lausa í samfélaginu. Ég geri mér fulla grein fyrir því að þetta er sjúkdómur en einnig finnst mér að um leið og þeir brjóta af sér að þá á að loka þá inni á sérstakri stofnun, sem eingöngu er fyrir þessi perra, og þeir vanaðir. En þar sem þessi stofnun er ekki til og verður væntanlega aldrei, vil ég fá það í lög að hver og einn hafi rétt til þess að geta gengið út á sína bæjarskrifstofu og fengið þar lista yfir þá barnaníðinga sem búa í hverfinu, með mynd svo hægt sé að bera kennsl á þá. Það á ekki að hlífa þessum mönnum. Þeir eiga það engan veginn skilið.
Kompás hefur staðið sig vel í svona umfjöllunum, og vakið upp margar umræður í samfélaginu. Heitar umræður hafa átt sér stað á Barnalandi og varla að maður þori að taka þátt í hættu á að vera tætt í sundur af reiðum kellingum. Svo ég tali nú ekki um Byrgismálið. Það voru á tímabili um 160 sveittar kellingar á barnalands spjallinu að reyna að redda sér myndbandinu góða. Ótrúlegt!!!
Annars hlakka ég til að sjá seinni Kompásþáttinn á sunnudagskvöldið. Mér finnst bara verst að þeir sýna ekki hvernig þessir menn lýta út, búnir að blörra andlitin á þessum perrum.
Langar bara að lokum til að skella hérna inn "vísu" sem ég fann á netinu um hann Gvend gamla í Byrginu.
(Gvendur á Eyrinni...)
Hann Gvendur í Byrginu var gamall perrakall
og bondage var hans fró.
Hann stundaði stóðlífi og kvennafar og svall.
Í Byrginu hann bjó.
Og Guðs orð hann boðaði í bland við blíðuhót,
úr ritningunni las.
Sitt sæði kvað Gvendur vera allra meina bót,
sig sjálfan Messías.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla,
tvær í einu þegar vel gaf.
Greip í Lille ven á milli guðspjalla
og dag né nótt hann varla svaf.
Og Ríkið sá Gvendi gamla alltaf fyrir fé,
jafnóðum eydd´ann því.
Hann keypti sér gúmmíkylfu og túttuklemmu úr tré
og leðurfötin ný.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla...
En Kompás í leikinn skarst og vildi skemma allt,
og fletti ofan af.
Nú er Gvendur í kuldann kominn út og þar er kalt
hann Byrgið yfirgaf.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla...
Þetta helst...
Það er ekkert ofsalega mikið að frétta þessa dagana. Var reyndar í fríi í vinnunni mið-föstudag því mamma var inná spítala. Við skelltum okkur í heimsókn til Huldu og Lovísu á fimmtudaginn og þar var ákveðið að gista á hóteli í Köben. Fengum herbergi á 900 danskar krónu svo það er ekki nema um 450 dkr á mann með morgunmat í miðbænum. Mér finnst það bara mjög vel sloppið. Nú er mann farið að hlakka svolítið til að komast eitthvað í burtu þó það sé ekki nema í sólarhring. Ekki það að ég sé eitthvað ánægð með að fara frá prinsessunni, reyndar vildi ég óska að ég gæti tekið hana með mér. Hún er reyndar búin að vera með hita núna um helgina. Lystarlaus og afskapega pirruð. Vildi ekkert sofa í nótt og grét bara. Ég gaf henni stíl og bar krem í góminn en það virkaði ekkert hún bara vældi. Vildi ekki mjólkina sína. Held að hún sé bara loksins að fara að fá tönnslur. Held bara að það sé ekkert meira að frétta af okkur.Veriði nú soldið dugleg við að kvitta ...
Frekjudósir...
Já þá er sko fæðingarorlofið á enda og maður farin að vinna fyrir sér. Ég er búin að fá vinnu á leikskólanum Reykjakoti hérna í Mosó. Ég er reyndar bara að vinna frá 8-2 svona til að byrja með en það er samt alveg nóg. Það er ennþá bara alltof erfitt að fara svona frá Angelu.Ég vinn á yngstu deildinni, Gula Kjarna Stelpur, og sé þar um 5 æðislegar litlar frekjudósir
Annars er það að frétta af prinsessunni litlu að hún er farin að segja DUDDA! Já hún veit sko hvað duddan sín heitir og segir það óspart. Hún er að verða svo svakalega stór og bráðum verð ég að halda uppá 1. afmælisdaginn hennar. Það er ekkert smá skrýtið. Tíminn er alltof fljótur að líða. Hún er svo dugleg líka, farin að æfa sig að standa upp þegar ég held í hana og er farin að færa sig áfram á rassinum. Hún er sko ekkert að fara að skríða venjulega en það vonadi kemur bara með tímanum.
Svo styttist alltaf í að ég fari til Köben, en það gerist einmitt líka í apríl.
The Lion
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst) - Ársspá 2007* Sköpunargleði þín eflist
* Hugar að andlegum málefnum
* Trúir á töfra sem efla þig eingöngu
* Elskar innilega og vandar þig
Árið 2007 heldur þú vissulega enn í barnslega heimssýn þína sem er mjög heillandi eiginleiki í fari þínu. Þú trúir á drauga, púka og óskir sem rætast fyrir einhverja töfra löngu eftir að þú nærð kosningaaldri. Það kann að hindra þig í að verða fullorðin/n en þegar ársspáin þín er tekin fyrir þá hjálpa umræddir eiginleikar þér að takast á við það sem bíður þín. Þú leyfir þér að virkja sköpunargleði þína þegar vorar 2007 en í því felst hin hæsta gleði sem þú hefur eflaust upplifað lengi. Sköpunargleði þína máttu alls ekki takmarka og það veistu vel kæra ljón.
Árið 2007 virðist þú leggja þig fram við að læra hvernig þú eigir að elska án skilyrða. Stjörnuspekilega stjórnast þú af sólinni, miðju og orkugjafa sólarkerfisins en þú finnur innra með þér að verkefni þitt er að opna hjarta þitt.
Það gerir þú með því að sigrast á eigingirni þinni og tilfinningaleysinu sem af henni leiðir og minnkar væntingar þínar. Forðast það að hjakka tilfinningalega í sama farinu af vana eða af grundvallarástæðu. Finnur gífurlegri sköpunarþörf þinni uppbyggilega útrásarleið. Ef þú tekur þessum ráðum verður þú hamingjusamari sem félagi og vinur árið 2007.
Sumarið framundan sýnir þig sterka/n, þrjóska/n, töfrandi í fasi og meðvitaða/n um sjálfa/n þig. Það er reyndar breytilegt hvernig þú beitir þínum miklu hæfileikum þegar líða tekur á lok ársins 2007 sem að þínu mati er eflaust sífellt umhugsunarefni.
Ljónið er kannski ráðríkt, eigingjarnt og sjálfselskt en endar á því að gera margt fólk hamingjusamt. Þegar best lætur kennir þú með því að vera ástrík manneskja. Annars er minnst á að þú hugir að andlegum málefnum í ársspánni þinni í ár. Hér er komið inn á þá staðreynd af hverju þú átt engar minningar um þín fyrri líf. Svarið er að þú átt þær. Þú nemur þær bara ekki sem minningar úr fyrri lífum. Dýpst í verund þinni skynjar þú að þú hafir verið hér áður. Þú hefur nú þegar lifað allt kæra ljón. Þú ert aðeins hér núna til að rifja það upp.
Áhersla lögð á betrumbætur
- Elska fólkið sama hvernig að hagar sér
- Hættu að gera óraunhæfar væntingar
- Áttaðu þig á hvað þú sannarlega vilt
- Gefðu eftir og leggðu þig fram við að hætta að vilja stjórna
Mikið er ég vitlaus...
Já haldiði að ég hafi barasta ekki gleymt að skrifa um hvað ég gerði seinna á gamlárs?? Jújú mér var nánast skipað að fara út að skemmta mér en mamma hvatti mig eiginlega til þessa að drífa mig á tjúttið með Helenu, Andra,Thelmu, Jóu og Jón Inga og svo var þarna einn vinur hans Andra sem ég man ekki alveg hvað heitir. Förinni var heitið á ´90 ballið á NASA og ég verð bara að segja að ég skemmti mér bara nokkuð vel svona þar til einhver Tæja tók sig til og sturtaði úr glasinu yfir hópunn og úr því var auðvitað smá slagur sem einhverra hluta vegna fór framhjá mér þar til Jóa og Bjarni stukku yfir handriðið til að taka í gelluna sem hélt svona líka fast í hana Helenu. Það endaði með því að Helena og Andri fóru heim en við hin fórum aftur inn. Svo var ekkert smá mikið vesen að komast heim. Ég og Jóhanna biðum örugglega í meira en klukkutíma eftir að skutlan átti að flytja okkur heim en gáfumst upp á biðinni að lokum og fengum far heim með gömlum Borgó félaga. Ég var komin upp í rúm um hálf 9 á nýársmorgun og var komin framúr 2 tímum seinna.
Jólin og Gamlárskvöld
Þetta voru alveg yndisleg jól hjá okkur mæðgum. Við vorum vaknaðar snemma á aðfangadags morgun og auðvitað var sest niður til að horfa á jólateiknimyndirnar en satt að segja hefur stöð 2 ekki staðið undir sínu undanfarin ár hvað jólabarnatímann varðar. Þetta er bara ekki eins án Afa og litla tröllaprinsins.Hvað sem því líður þá var dagurinn frábær og alls ekkert stress sem vill stundum fylgja með á aðfangadag. Maturinn var góður og frágangurinn gekk ótrúlega fljótt fyrir sig og svo var ekkert eftir nema að fara að opna pakkana!!! Angela fékk fyrsta pakkan og hún hjálpaði sko til við að opna hann! Hún var svo sæt í fallega kjólnum sínum. Það kemur kannski fæstum á óvart að hún átti flesta pakkana undir trénu en það tók okkur klukkutíma að komast í gegnum allar gjafirnar og sat ég sveitt eftir átökin við slaufur og pappír. Í miðjum hamaganginum fór Angela að dotta aðeins og það endaði með því að hún fór inn að leggja sig á meðan pappírinn var settur í ruslið og súkkulaðið hitað.
Á jóladag fórum við svo í matarboð til ömmu og afa eins og venjan er á jóladag. Aníta á nefninlega afmæli og var með fallega kúlu út í loftið en hún á bara von á sér á næstu dögum.
Við slöppuðum bara vel af svo á milli jóla og nýárs og nutnum jólanna.
Okkur var svo boðið í mat til Lindu frænku á gamlárskvöld. Almar, Hulda og börnin þeirra, Alexander og Lovísa, voru þar líka. Þetta var alveg frábært kvöld og maturinn var ótrúleg góður. Svo var horft á frétta annál stöðvar 2 sem ég verð nú að viðurkenna að hefur verið mikið betri. Skaupsins var svo beðið með eftirvæntingu og var það að mínu mati bara nokkuð gott. Það sem stóð uppúr var þegar Nylon hópurinn söng um að synda um í Thames ánni í þveng, Baugs myndin og hún vinkona mín Brynja Börk.
Að lokum vil ég bara þakka fyrir Angelu, hún fékk æðislegar gjafir og geggjuð föt frá Thailandi, og óska ykkur gleðilegs ný árs og þakka fyrir þau gömlu.