17júní

why?

Afhverju, þegar allt virðist ganga vel, þarf eitthvað að gerast til að draga mann enn neðar?

Undan farnar vikur hafa verið frekar erfiðar. Mér finnst ég ekki hafa neina undankomuleið og það virðist aldrei vera nein sýnileg leið til hjálpar. Ég sef lítið sem ekkert og hef stanslausar áhyggjur. Mig langar helst ekkert til að fara framúr á morgnana en þá sé ég litla fallega engilinn minn og veit að ég þarf að gera það fyrir hana. Það er samt svo erfitt að setja upp grímu á hverjum degi þegar svo margir í kringum mig eru svo hamingjusamir. Stundum velti ég því fyrir mér hvort ég eigi einhvern tímann eftir að upplifa það sjálf. Að finnast ég vera örugg og að einhver sé til staðar fyrir mig. Því eins og staðan er í dag að þá finnst þeim sem eru næstir mér, ég ekki nógu góð. Það sem ég geri er ekki nógu gott. Þá kemst ég auðvitað ekki hjá því að efast um sjálfa mig og það er ekkert verra en að efast um sjálfa sig. Það verður allt svo svart í kringum mann. Allt nema eitt. Það getur aldrei orðið svart í kringum engilinn minn. Hún er það eina bjarta í lífi mínu. Hún er allt sem ég á.
Ég veit ég opna mig alls ekki nógu oft en ég varð bara að gera það núna. Ég bara get ekki meir. Ég er bara svo uppgefin tilfiningalega að ég bara get ekki meir og veit bara ekki hvað ég á að gera!  Það létti samt aðeins að opna mig hérna...
17. júní 2007 klukkan 01:21
Vallý Einars
3 athugasemdir
26maí

the Hardest thing...

Ég veit ég hef ekki verið duglegust að blogga en það hefur bara ekkert merkilegt verið að frétta, fyrr en núna kannski :)

Laugardagurinn 19.maí: Við byrjuðum á því að sækja Huldu um klukkan 10:30. Klæddum gæsina í búninginn, skáluðum í kampavín og brunuðum af stað. Fyrsta stopp var magadanshúsið þar sem gæsin var klædd í svona svakalega fínan Bollywood-búning en klaufinn hún Hulda steig alltaf á pilsið svo að hún var látin skipta um og fékk ennþá flottari búning. Við spreyttum okkur í bæði Bollywood dansi og svo magadansi og skemmtum okkur konunglega :) en shitturinn hvað þetta tók á. Það rann af okkur á no time svo að þegar tíminn var búinn var farið á The Trunk Bar :) híhíhíhí...  Næsta stopp var ÁTVR þar sem barinn þarfnaðist áfyllingar og svo var haldið á Subway til að fæða gæsina því ekki mátti hún drepast um miðjan dag. Eftir að hafa fengið okkur aðeins í svanginn var ferðinni heitið í Baðhúsið þar sem gæsin var send í heilnudd.. umm!! Á meðan hún var að slaka aðeins á brunuðum við hinar heim til foreldra Stefaníu og súkkulaðihúðuðum jarðarber og svo var brunað aftur upp í baðhús þar sem við hittum Huldu í pottinum með jarðarberin og meira Kampavín. Tókum okkur góðan tíma í að taka okkur til og gera okkur sætar fyrir kvöldið. Náðum heldur betur að koma gæsinni á óvart með útsýnisflugi með öðrum stegg :) úff hvað hún var ekki til í þetta til að byrja með en þegar þau voru lent aftur hafið hún auðvitað skemmt sér ógeðslega vel :) Fórum heim til Stefaníu á smá fordrykk áður en við fórum út að borða á Caruso. Rosalega góður matur og auðvitað fékk Gæsin typpaís í eftir rétt :) Hélt í alvöru að hún myndi pissa í sig af hlátri þegar hún fattaði hvað þetta var :)
Þar sem við höfðum svo langan tíma það til að næsta mál á dagskrá yrði fórum við bara aftur heim til Stefaníu og drukkum aðeins meira :) Svo var gæsin dregin niður í miðbæ, nánar tiltekið á NASA þar sem uppáhalds hljómsveitin hennar var með ball. Sálin toppaði kvöldið á annars mjög vel heppnuðum degi:)

Svo á sunnudeginum þegar ég vakanaði var hún Angela mín ekkert alltof hress svo á mánudeginum fór ég með hana til læknis sem sagði að hún væri komin með eyrnabólgu. Hún fékk lyf við því en á fimmtudaginn var hún miklu verri, hélt engu niðri og var komin með 39. stiga hita. Hringdi á lækni sem sagði mér að fara með hana á bráðamóttöku barna sem ég gerði. Hún var höfð inni um nóttina með vökva í æð þar sem hún var að þorna upp greyið mitt litla :( mikið fann ég til með henni og ekkert smá erfitt að horfa á barnið sitt svona lasið. Þó svo að þetta hafi ekki verið alvarlegra en vökvaskortur get ég ekki ímyndað mér hversu erfitt sé að horfa upp á barnið sitt með alvarlegan sjúkdóm. Þetta var nógu erfitt. Sem betur fer jafnaði hún sig fljótt og við fengum að fara heim um morguninn.

that´s all..

26. maí 2007 klukkan 13:05
Vallý Einars
1 athugasemd
21apríl

Live a fockin little!!!

Kannksi ofnotaðasti frasi ferðarinnar sem var frekar skrautleg.
Rósa kom og sótti mig á þriðjudagskvöldið og fórum við heim til hennar. Ég held ég hafi náð að leggja mig í einn og hálfan tíma í sófanum hjá henni en svo var kominn tími til að leggja af stað uppá völl. Komum við heima hjá Huldu til að verða í samfloti við þær Jónu. Spannan farin að aukast aðeins þá. Við vorum svo komnar upp á völl rétt fyrir 5 og þá blasti þessi líka svakalega langa röð við okkur og án þess að kanna málið neitt starx drifum við okkur í hana. Það kom svo nokkrum mínútum seinna í ljós að við vorum í bandvitlausari röð. Komum okkur í rétta röð og vorum enga stund að tékka okkur inn.  Þegar við vorum svo komnar upp í fríhöfnina var ákveðið að fá sér morgunmat og fengum okkur einn öllara áður en byrjað var að versla. Ferðin út var nokkuð skemmtileg enda skörtuðum við allar nýjum sólgleraugum sem við keyptum í fríhöfninni. (ógó pæjur sko) . En svo kom að lendingunni... guð minn góður ég hélt bara að við myndum lenda á hlið!!! þvílíkt og annað eins... !! Svo var ekki bara hægt á vélinni eins og venjulega gert heldur nelgdi flugmaðurinn bara niður og allir köstuðust á sætið fyrir framan sig. Vorum sko ekki lengi að troða okkur útúr vélinni. Svo var bara drifið sig að ná í töskurnar og svo niður í bæ. Fundum hótelið eftir að hafa vilst pínulítið en herbergið var ekki tilbúið svo við ákváðum að byrja í lunch og fara svo niður í bæ. Rukum niður strikið og stoppuðum í nokkrum búðum á leiðinni í H&M. Okkur Huldu var bókstaflega hent út þegar búið var að loka. Verð bara að segja að danir eru GEÐVEIKT DÓNALEGIR og tóku ekki einu sinni afsökunarbeiðni okkar til greina þegar við sögðumst bara hafa gleymt okkur þarna inni. Fórum upp á hótel og tókum okkur til fyrir kvöldið. Byrjuð á að fá okkur að borða á Rio Bravo og fórum svo á Vestebro Brugery og þar skemmtum við okkur sko. Trúbadorinn var stór skemmtilegur. Við vorum eina fólkið í stuði þarna og kallinn var farinn að kalla okkur mjög svo skemmtilegum nöfnum. Hann sagðist líka þekkja Dabba Kóng og hafa komið nokkrum sinnum til Íslands, Hulda plöggaði hann líka til að koma og spila í brúðkaupinu sínu. Eftir brugghúsið fórum við að sofa. Vöknuðum svo snemma til að fara í morgunmat en komumst svo að því að búðirnar opnuðu ekki fyrr en klukkan 10 svo við skriðum bara aftur upp á herbergi og ég náði að sofna í svona klukkutíma eða svo. Þá var brunað í H&M aftur til að kaupa aðeins meira og náðum að vera þar í svona 2 tíma. Því næst fórum við með pokana upp á hótel til að troða ofan í töskurnar. Fórum svo í tívolíið og Rósa og Jóna fóru í einhver tæki en við Hulda röltum um og tókum myndir. Svo fórum við í Build-a-Bear og keyptum bangsa fyrir skvísurnar okkar. úff hvað þetta var skemmtilegt. Þá var eiginlega bara komið að heimferðinni. Komum upp á flugvöll u.þ.b. 3 tímum fyrir brottför, við ætluðum sko að hafa nægan tíma í fríhöfninni, en nei.. þarna blasti sko við okkur 5km löng röð. Kerfið hjá Iceland Express hrundi!! og þeir náðu ekki að byrja að tékka inn fyrr en um klukkutíma fyrir brottför. Fengum sem sagt engan tíma í fríhöfninni nema rétt aðeins til að ná í TAX-free peninginn og kaupa okkur nesti í flugvélina. Við vorum sko nett pirraðar og var starfsfólki express úthúðað alveg hreint alla leiðina heim nánast.
Ferðin var í alla staði hreint frábær bara og hlakka til á næsta ári.
og að lokum
LIVE A LITTLE stelpur!!
LIVE A FOCKIN LITTLE!!! :)
21. apríl 2007 klukkan 22:12
Vallý Einars
3 athugasemdir
12apríl

Páskar

Já páskarnir eiginlega komu bara og fóru. Var í 5 daga páskafríi og naut þess sko alveg í botn. Lá annað hvort upp í sófa eða á gólfinu að leika við Angelu en skvísan er sko farin að labba meðfram flestu. Hún fékk ekkert páskaegg í ár enda bara nýorðin 1.árs, en kannski fær hún að smakka á næsta ári. 
Badda sys kom svo í heimsókn á laugardaginn og kippti hárið mitt... LOKSINS. Það var sko ekki sjón að sjá mig, orðin ansi úfinn. Það var líka gott að sjá hana, hef ekki séð skvísuna í langan tíma, hún er líka nánast flutt til Grindavíkur til kærastans. 

Hitti svo hana Tobbu mína á mánudaginn og við skelltum okkur í bíó. Sáum 300, en ég held barasta að þetta sé hin eina sanna konu klámmynd, ekkert nema fallegir stæltir karlmenn í engu nema lendarbrók og skikkju. Það var ekki verra að sjá beran rassinn á Gerard Buttler en það verður að segjast að hann er bara með flottari bakhluta en félagi hans Brad Pitt. úff... 

Svo eru ekki nema 30 dagar í alþingiskosningar og ég er ekki ennþá búin að ákveða hvað skuli kjósa. Það þarf eiginlega að breyta þessu kosningarkerfi þannig að hægt verði að kjósa eintaklingana en ekki endilega allan helv.. flokkinn. Til dæmis ef ég mundi kjósa samfylkinguna mundi ég ekki kjósa kallinn í 1.sætinu en ég mundi kjósa Katrínu Júlíusdóttur sem er í 2.sæti og svo Gumma Steingríms sem er í því 4. en engann annan.  Það sama á við um hina flokkana. 
Ég er samt sem áður farin að hallast að því að kjósa bara Frjálslynda vegna afstöðu þeirra til innflytjenda mála. Ekki það að ég sé einhver rasisti eða neitt svoleiðis, finnst bara að við ættum að sortera aðeins hverjum við erum að hleypa inn í landið.  Ekki vil ég lenda í einhverjum nauðgara frá austur-evrópu eins og lýst var eftir í fréttum um daginn.  Mér finnst allt í lagi að leyfa þessu fólki að koma hingað að vinna en það þarf að fylgjast aðeins betur með þeim. 

Held ég láti þetta vera nóg í bili, er að spá í að fara að skríða upp í rúm.
 
12. apríl 2007 klukkan 22:33
Vallý Einars
2 athugasemdir
03apríl

Hún á afmćli í dag!

Hugsið ykkur! Litla prinsessan mín er orðin 1.árs í dag. Þetta hefur verið alveg hreint ótrúlega fljótt að líða, mér finnst eins og ég hafi bara komið með hana heim af spítalanum í gær.

Hún stækkar og stækkar með hverjum deginum og er farin að standa sjálf og farin að færa sig aðeins meðfram hlutum og fer örugglega að labba bráðlega :) tennurnar eru ekkert farnar að láta sjá sig en þær hljóta nú að fara að koma í ljós.

Læt þetta vera gott í bili. verið svo dugleg að kvitta

03. apríl 2007 klukkan 20:25
Vallý Einars
5 athugasemdir
27mars

Ţvílík Leti!!!

Já ég hef satt að segja bara verið alvg hundlöt viðað blogga upp á síðkastið. Það er svo sem ekki búið að vera neitt mikið að gerast hjá mér. Það snýst auðvitað allt um litlu prinsessuna mína sem er þessa dagana sárþjáð af eyrnabólgu! Hún á svo svakalega bágt og er svo lítil í sér eitthvað, vill bara kúra í fanginu á mömmu. Ég má ekki einu sinni fara á klósettið án þess að hún fari að gráta blessunin.

Svo kemur hún Tobba mín heim eftir nokkra daga, GET EKKI BEÐIÐ, og er hugsanlega kannski komin heim fyrir allt... allavega í bili. Gaui braut af sér og var skilinn eftir með sárt ennið í Calgary. Gott á hann bara. Svo er hún Jóa mín líka að ganga í gegnum erfitt tímabil.
Veit bara hreinlega ekki hvað er að köllunum þeirra.

En já svo er afmæli um helgina! úff það verður sko nóg að gera. Verð dugleg að taka myndir og setja inná síðuna hennar. Þið verðið að vera miklu duglegari við að kommenta eða alla vega kvitta fyrir komuna.
DÓNAR!!

27. mars 2007 klukkan 16:22
Vallý Einars
6 athugasemdir
07mars

Brjálađ ađ gera!!

Já það fer sko heldur betur að verða brjálað að gera hjá mér. Það líður að brullupinu hennar Huldu svo það er ekki seinna vænna en að fara að drífa í því að byrja að plana gæsunina. Hringja og panta hitt og þetta og svona. Verð nú samt ekki ein í þessu þar sem að Stefanía, vinkona gæsarinnar, ætlar að hjálpa mér með þetta. Þvílíkur léttir. Er komin með slatta af hugmyndum sem ég er að reyna að vinna úr og satt að segja vildi ég óska að við hefðum viku í að gæsa hana þar sem margt af þessu er alveg svakalega spennandi. híhíhí... ;)

Angela er vonandi LOKSINS byrjuð að taka tennur. Hún hefur allavega öll einkennin og gómurinn er farinn að hvítna ;) nú er bara að bíða eftir að finna fyrstu tönnina. Hlakka alveg svakalega til!
07. mars 2007 klukkan 22:16
Vallý Einars
3 athugasemdir
25febrúar

oj bjakk

Ekkert mikið að frétta þannig. Fékk vírus í magann á föstudaginn og flutti þar af leiðandi bara inná bað.
Vona bara að ég hafi ekki smitað litlu snúlluna mína.
Núna er ekki nema rétt einn og hálfur mánuður í Köben og ég get ekki beðið. Ég er orðin svoooo spennt. En það sem ég er spenntari yfir er að það er mánuður í 1.árs afmælið! úff hvað ég hlakka til. Það er alveg ótrúlegt hvað hún er orðin dugleg. Farin að skríða um á rassinum og farin að setjast upp alveg sjálf.. talk about proud mum.

25. febrúar 2007 klukkan 10:43
Vallý Einars
2 athugasemdir
17febrúar

2007 ár uppljóstrana!?

Já það verður sko ekki sagt að árið 2007 hafi verið viðburðarlítið. Þó ekki séu nema 2 mánuðir liðnir af árinu hafa nokkur hneykslismál verið uppljóstruð. Þetta byrjaði samt allt rétt fyrir jólin með umfjöllun Kompás um Byrgið og hann Gvend sem þar réði ríkjum. Í kjölfarið fylgdu svo Breiðavíkur málið, umræðan um stúlkna heimilið á Seltjarnarnesi og svo núna síðast unglinga heimilið í Kópavogi.  Ég á erfitt með að trúa að svona lagað hafi viðgengst í okkar litla þjóðfélagi án vitundar ríkisráðsmanna. Það hlýtur einhver að hafa vitað hvað gekk á á þessum heimilum og ég vil fá að vita hver það er. Mér finnst við, íslenska þjóðin, eiga rétt til að vita hvers konar siðblindir menn ráða í landinu okkar.

Hneykslismálin eru ekki bara að koma upp á yfirborðið á Íslandi. Í fréttum stöðvar 2 fyrir um 2 dögum var fjallað um fréttamann TV2 í Danmörku sem kom upp um illa meðferð á geðfötluðum sem búa á vernduðu heimili. Það sem illskan í sumu fólki fær það til að gera þeim sem minna meiga sín er alveg hræðilegt.

Hvers konar ófreskjur eru þetta sem geta fengið sig í það að meiða saklaus börn og annað fólk sem minna má sín og getur jafnvel ekki hugsað um sig sjálft?

17. febrúar 2007 klukkan 14:02
Vallý Einars
6 athugasemdir
09febrúar

Breiđavíkur Börnin

Ég hef fylgst svo til mikið með umræðunni um Breiðavíkur börnin, bæði í sjónvarpinu og svo á netinu.
Ég verð bara að segja að mér þykir það mjög merkilegt að svona hræðilegur atburður skuli hafa átt sér stað á okkar litla Íslandi og að enginn hafi "vitað" af því.  Þetta er alveg til skammar að umsjónarfólkið á Breiðavík hafi komið svona fram við þessa litlu stráka og komist upp með það.
Einn af bræðrum hennar mömmu var þarna í 2 ár og leið vítiskvalir allan tímann sem hann var þarna. Ég var aðeins að frétta af þessu í vikunni og maður verður einhvern veginn reiðari yfir þessum fréttum þegar maður kemst að því að náinn ættingi sinn skuli hafa lent í klóm þessara villimanna. Hann hefur aldrei beðið þess bætur og hefur síðan á fermingar aldri verið mjög bitur út í lífið og ekki náð að átta sig á afhverju hann?? Afhverju þessir strákar, sem voru enn börn þegar þeir upplifðu helvíti á jörð. Ég hugsa að ef að amma mín heitin hafi vitað hvað væri verið að gera barninu hennar hafi hún farið strax vestur eftir og hent honum Þórhalli fram af fjallinu þarna og örugglega kellingunni hans líka. Hún verndaði alltaf fjölskylduna sína. Hún amma var æði.
Ég ætla sko rétt að vona að yfirvöld sjái að sér í þessu máli og réttlæti þessi "mistök" sem Breiðavík var og fyrirgefi hverjum og einum þessara manna og reyni hvað þeir geta til að hjálpa þeim í að komast yfir mestu reiðina. Ég ætla ekki að segja að þeir eigi eftir að komast yfir þetta því svona sár gróa aldrei.
09. febrúar 2007 klukkan 20:24
Vallý Einars
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Demanturinn minn

Könnun

Hvort er betra?