Svíţjóđ
Já það var sko haldið út á völl frekar snemma end spenningurinn að fara með mig!! (það vita það ekki margir en ég HATA að fljúga!! allavega að taka á loft og lenda). Tékkaði mig sjálf inn í svona sjálfsala, henti töskunni í farangursmóttökuna og hélt upp í fríhöfn.Ég gat sko alveg byrjað að versla þar aðeins. Keypti mér púður og maskara og áfengi auðvitað :)
Keypti svo tímarit í bókabúðinni og ágætan morgunmat þar sem flugvélamaturinn er alltaf jafn ógeðslegur.
Aldrei þessu vant sofnaði ég í flugvélinni. (á mjög erfitt með að sofa í hlutum sem hreyfast). Lenti á Arlanda rétt fyrir hádegi og hitti gæjann :) Við keyrðum svo bara beina leið inn til Stokkhólms þar sem leitin að hótelinu hófst. En frekjan ég heimtaði að fá að eyða einum degi í Stokkhólmi. Sé sko alls ekki eftir því. Eftir um klukkutíma leit fundum við þetta litla sæta hótel, fengum herbergið okkar, komum farangrinum fyrir og drifum okkur að skoða borgina. Náði að versla aðeins í H&M þarna í leiðinni. hahah sleppi sko alls ekki H&M. Um kvöldið fórum við svo út að borða á litlum ítölskum stað í gamla hluta Stokkhólms. Seinna um kvöldið skelltum við okkur á pöbbinn og fengum okkur aðeins í aðra tána;)
Morguninn eftir fór svo bara í rólegheit. Hvíldum okkur aðeins meira eftir morgunmatinn en svo var bara pakkað saman og farið á VASA-safnið. (bara googla ef þið eruð forvitin). En vasa er sem sagt elsta vaðveitta seglaskúta/skip. Var á hafsbotni í 333ár og er 95%heilt.
Eftir safnaferðina var einfaldlega haldið til Västerås sem er svona "smábær" sem er svipað stór og höfuðborgarsvæðið :) haha
Á föstudeginum fór ég svo að versla í miðbænum þarna og hljóp eiginlega á milli H&M verslana en komst aðeins að því að það voru sömu vörurnar alls staðar og svakalega lítið úrval af kvenfatnaði. Keypti nú ekki mikið á Angelu heldur en náði samt að eyða um 30.þús. :)
Kíkti á djammið á laugardagskvöldinu og skemmti mér bara mjög vel... samt ekki eins gaman og í 101 :D
Sunnudagurinn fór svo mest megnis í þynnku.. held ég hafi ALDREI upplifað aðra eins þynnku. Verð ekki oft þunn þannig ég var að deyja hreinlega. Höfðum það bara cozy og horfðum á Sweeny Todd, sem er æði btw.
Vaknaði snemma á mánudeginum, fór í sturtu og lögðum af stað til Arlanda. Það var einhvern vegin svo auðvelt að kveðjann þar sem að ég gat hreinlega ekki beðið eftir að komast heim til Angelu. Held ég fari aldrei frá henni í svona langan tíma aftur. :D
En annars bara vel heppnuð og skemmtilega ferð.
hver veit... kannski fer ég bara aftur einhvern tímann :)
21. febrúar 2008 klukkan 18:52
Vallý Einars
Vallý Einars