21febrúar

Svíţjóđ

Já það var sko haldið út á völl frekar snemma end spenningurinn að fara með mig!! (það vita það ekki margir en ég HATA að fljúga!! allavega að taka á loft og lenda). Tékkaði mig sjálf inn í svona sjálfsala, henti töskunni í farangursmóttökuna og hélt upp í fríhöfn.
Ég gat sko alveg byrjað að versla þar aðeins. Keypti mér púður og maskara og áfengi auðvitað :)
Keypti svo tímarit í bókabúðinni og ágætan morgunmat þar sem flugvélamaturinn er alltaf jafn ógeðslegur.
Aldrei þessu vant sofnaði ég í flugvélinni. (á mjög erfitt með að sofa í hlutum sem hreyfast). Lenti á Arlanda rétt fyrir hádegi og hitti gæjann :) Við keyrðum svo bara beina leið inn til Stokkhólms þar sem leitin að hótelinu hófst. En frekjan ég heimtaði að fá að eyða einum degi í Stokkhólmi. Sé sko alls ekki eftir því. Eftir um klukkutíma leit fundum við þetta litla sæta hótel, fengum herbergið okkar, komum farangrinum fyrir og drifum okkur að skoða borgina. Náði að versla aðeins í H&M þarna í leiðinni. hahah sleppi sko alls ekki H&M. Um kvöldið fórum við svo út að borða á litlum ítölskum stað í gamla hluta Stokkhólms. Seinna um kvöldið skelltum við okkur á pöbbinn og fengum okkur aðeins í aðra tána;)
Morguninn eftir fór svo bara í rólegheit. Hvíldum okkur aðeins meira eftir morgunmatinn en svo var bara pakkað saman og farið á VASA-safnið. (bara googla ef þið eruð forvitin). En vasa er sem sagt elsta vaðveitta seglaskúta/skip. Var á hafsbotni í 333ár og er 95%heilt.
Eftir safnaferðina var einfaldlega haldið til Västerås sem er svona "smábær" sem er svipað stór og höfuðborgarsvæðið :) haha
Á föstudeginum fór ég svo að versla í miðbænum þarna og hljóp eiginlega á milli H&M verslana en komst aðeins að því að það voru sömu vörurnar alls staðar og svakalega lítið úrval af kvenfatnaði. Keypti nú ekki mikið á Angelu heldur en náði samt að eyða um 30.þús. :)
Kíkti á djammið á laugardagskvöldinu og skemmti mér bara mjög vel... samt ekki eins gaman og í 101 :D
Sunnudagurinn fór svo mest megnis í þynnku.. held ég hafi ALDREI upplifað aðra eins þynnku. Verð ekki oft þunn þannig ég var að deyja hreinlega. Höfðum það bara cozy og horfðum á Sweeny Todd, sem er æði btw.
Vaknaði snemma á mánudeginum, fór í sturtu og lögðum af stað til Arlanda. Það var einhvern vegin svo auðvelt að kveðjann þar sem að ég gat hreinlega ekki beðið eftir að komast heim til Angelu. Held ég fari aldrei frá henni í svona langan tíma aftur. :D
En annars bara vel heppnuð og skemmtilega ferð.
hver veit...  kannski fer ég bara aftur einhvern tímann :)
21. febrúar 2008 klukkan 18:52
Vallý Einars
3 athugasemdir
22janúar

Nýtt ár... ný ćvintýri...

já er ekki bara komið nýtt ár og alveg óralangt síðan ég bloggaði síðast. Ekki nógu andskoti dugleg að þessu en vonum bara að það fari batnandi.
Ég er komin í nýja vinnu eins og flestir kannski vita núna. Vinn á Grand Hótel þar sem þessa dagana er allt vitlaust að gera.
Er búin að fara með Angelu til læknis útaf málþroskanum og það kom í ljós að eyrun hennar eru full af vökva og við þurfum núna að bíða eftir að heyrna-og talmeinastöðin hafi samband við okkur og næsta skref ákveðið. Vona að það verði bara nóg fyrir hana að fá rör þó svo að það sé ekki endilega það sem ég vilji. En ég geri örugglega hvað sem er til að hjálpa prinsessunni minni.

Er svo að fara til Svíþjóðar eftir 2 vikur :) segi meira frá því seinna :)
22. janúar 2008 klukkan 16:55
Vallý Einars
7 athugasemdir
17nóvember

Taser byssur og Leikskólapláss!!

Var að fá að heyra frá dagmömmunni minni að Angela fengi líklegast ekki pláss fyrr en með vorinu!!! Já held ekki! Ég er í fríi á mánudaginn og þá fá þessar kellingar að heyra það! Hvernig á ég að geta ein endalaust borgað dagmömmu 75.þúsund og þarf svo að bíða til 10. hvers mánaðar til að fá fokkin endurgreitt!!!! Og það er sko fáránlega lág upphæð sem á reyndar að hækka um nokkra hundrað kalla um áramótin en á móti kemur að dagmæðurnar eru að hugsa um að hækka verðið hjá sér uppí 90.þús!!! Hvað er að??? Ég sé fram á að þurfa líkalegast bara að hætta að vinna og breytast í aumingja svo að ég geti séð bara um barnið mitt sjálf!!!! Ótrúlegt ekki satt?? Að maður fái ekki þá aðstoð og þjónustu sem maður þarf til að geta hugsað um börnin sín!!! Fáránlegt samfélag sem við búum í!! Það skíta ekki allir peningum sko!!!!! Kannski kominn tími til að fólkið sem "stjórnar" á þessu skeri fari að vakna og sjá hvar vandamálin eru.. þau eru ekki í felum í orukuveitunni!!! Fávitar!!!!

Svo er málið með þessar Taser byssur sem lögreglan vill fá í notkun, ég fyrir mitt leiti er alveg 100% á móti þessum tólum. Maðurinn dó í kjölfar stuðsins sem hann fékk frá byssunni. Og það hafa líka fleiri. Þó svo að það sé ekki hægt að kenna byssunni alfarið um að þá getur ekki verið hollt fyrir líkamann að fá svona stuð. Ég meina hjartað fær auðvitað sjokk og ef það er kannski ekki alveg í góðu lagi getur það bara alveg stoppað og manneskjan hreinlega bara dáið. Að mínu mati dó maðurinn í kanadi af völdum byssunnar sem sögð er vera með mannlegri "tólum" sem lögreglan getur notað.
Afhverju ekki bara að taka skrefið til fulls og útveg lögreglunni okkar alvöru byssur svo þeir líti ekki út fyrir að vera svona miklar "rent-a-cops". Haldiði að þeir yrðu ekki glaðir með svoleiðis dót í jólapakkanum???
17. nóvember 2007 klukkan 20:52
Vallý Einars
Engin athugasemd
04nóvember

Halloween og fleira :)

Já ég veit að ég er sko alls ekkert að standa mig hérna...
En já það hefur ýmislegt gerst núna í síðustu viku. Ég fór í halloween party um síðustu helgi með Sigurrós og Tobbunni. Ég fór sem little sexy devil, Sigurrós sem nurse Betty og Tobban sem Moulin Rouge Hóra :)
Geggjað flottar skvísur þar á ferð. Fengum frekar mikla athygli þegar í bæinn var komið, alls konar fólk að taka myndir af okkur og svona.. sumir fengu meðal annars sprautu í rassinn frá Nurse Betty :) Hún var nú samt dugleg að halda síliconinu í djöfla túttunum :) Var alltaf að bæta í :) hahahahaha....
Svo á miðvikudaginn var síðasti dagurinn í vinnunni þó svo að ég komi nú eitthvað til með að vera svona auka manneskja þar til ég fæ aðra vinnum en það er alveg hreint ótrúlegt hvað það tekur marga laaaaaangan tíma að svara umsóknum!!!!
Angela Huld er alltaf hreint lasin þessa dagana... um daginn var það gin og klaufaveiki og núna streptakokkar !!! það á ekki af henni að ganga. Komin á pensilin í 3ja skipti á 6 mánuðum. Ég er ekkert alltof sátt við það sko ....
Jæja ætla að fara að gefa henni eitthvað að borða svo hún geti farið að leggja sig bráðum :)
04. nóvember 2007 klukkan 10:38
Vallý Einars
2 athugasemdir
22október

allt ađ gerast... eđa hvađ???

Já, allt virðist einhvern veginn ganga svolítið upp þessa dagana. Búin að missa 21.kg á 93 dögum bara með því að borða :) ótrúlegt sko! Það segja mér allir hversu vel ég lít út og allt það en samt á ég svo erfitt með að sjá það sjálf og það er eitthvað sem ég á svo erfitt með að sætta mig við. Þó ég finni vel árangurinn þá bara sé ég hann ekki þegar ég horfi í spegilinn. Það er svoldið að trufla mig. Líka farin að kvíða aðeins fyrir jólunum þar sem ég held eða ég veit öllu heldur að ég er alls ekki tilbúin að kveðja jólamatinn minn! Geðveiki ég veit en samt er þetta bara satt. Alveg eins og alkólistinn og dópistinn þá hugsar matarfíkillinn bara um dópið sitt :) hahaha .. fyndið að tala um mat sem fíkniefni en í mínu tilviki er hann það !!!

Fór um helgina að djamma með Helenu og Jóhönnu sem ég hef bara ekki gert í alltof langan tíma og það var geggjað gaman. Tobba kom með okkur og vá hvað það var æðislegt að hafa þær allar saman. Verðum að endurtaka þetta aftur fljótlega :)

Angela er svo komin með gin- og klaufaveiki og núna verðum við bara heima í sóttkví í 3-5 daga. ömurlegt þar sem ég hætti í vinnunni minni í næstu viku!!! vona að hún verði bara fljót að ná þessu úr sér en það er svo misjafnt hvernig þessi veirusýking fer í þau.
22. október 2007 klukkan 22:36
Vallý Einars
6 athugasemdir
04október

Skil ekki

Jæja... sagði upp í vinnunni í dag þar sem ég hefði getað fengið frábæra vinnu og mikið betri laun en..... neibb... þú skalt sko vinna þennan 3ja mánaða uppsagnarfrest!!! Hvað er að??? OOOHH... ég varð ekkert smá reið. Það besta var samt að mig langaði ekki að næra reiðina með mat :) þannig að það var smá silver lining þarna :) En ég er sem sagt núna að leita mér að vinnu alveg á fullu þannig ef að þið vitið um eitthvað þá bara endilega látið mig vita :) Skoða allt skal ég segja ykkur.

Annar eru 16dagar í næstu vigtun og ég er ýkt spennt. Get ekki beðið eftir að vita hvaða tala kemur upp núna en hingað til hef ég misst 13.8kg!!!! Aldrei hélt ég að ég gæti lést svona mikið á svona stuttum tíma og það eina sem ég geri er að borða :D hahahaha...

Jæja ætla nú ekkert að hafa þetta lengra en veriði nú endilega dugleg að kvitta :)
04. október 2007 klukkan 21:14
Vallý Einars
6 athugasemdir
21september

Jćja...

Mánuður 2 liðinn og 13.8kg farin!!! Það er nú bara nokkuð gott held ég þar sem ég geri nákvæmlega ekkert annað en að borða eftir gráu síðunni minni :)
Þetta er líka bara allt annað líf. Fötin mín stækka bara og stækka og ég get hreinlega ekki beðið eftir að geta farið að kaupa mér föt fyrir jólin og svonna :)

Tobba átti afmæli um síðustu helgi og skelltum við skvísurnar okkur í bæinn. Byrjuðum aðeins á Oliver en jiiiiii minn eini hvað tónlistin var ÖMURLEG svo við fórum bara á sólon þar sem dansskónum var slitið. Skemmtum okkur alveg gasalega vel bara.



Erum við ekki æðislegar ???? ;)
21. september 2007 klukkan 22:32
Vallý Einars
3 athugasemdir
07september

skil ekkert í ţessu

Ég er búin að vera óttalega löt að blogga en þannig er að ég er nýbyrjuð að vinna heilan vinnudag (8-4) og það er bara ekki alveg að fara vel í mig. Ég virðist einhvernveginn ekki ná að hvíla mig nóg á milli og ekki hjálpar að elskan hún Angela er að taka tennur. :) Ekki bætti það ofan á álagið að hún er með sprungu á beini í ristinni :( og hvorki ég né dagmamman hennar vitum hvernig það gæti hafa gerst. Alveg hreint ótrúlegt sko.

En svona að öðru að þá er dagur 50 í dag :) ekkert smá stolt og hef sko staðist freistingarnar hingað til. En þetta er ekkert smá erfitt samt. Endalausar auglýsingar um mat og matur út um allt er ekki til að bæta á stríðið sem geisar í hausnum á mér :) Stundum er ástandið svo slæmt að ég get ekki gefið stelpunum sem ég sé um á leikskólanum að borða einfaldlega afþví að ég get ekki þaggað niðrí röddunum sem segja mér að ég geti alveg fengið mér núna og byrjað dag 1 á morgun. Ég held að ég hefi þetta bara á viljastyrknum. Vissi ekki að hann væri svona sterkur. ;)

En jæja. Hún Tobba mín dróg mig út á lífið um síðustu helgi og það var bara nokkuð gaman. Soldið erfitt að venjast því samt að vera edrú en það var skemmtilega öðruvísi :) Við ætlum að fara aftur um næstu helgi þegar Tobban á afmæli. Mikið hlakka ég til. Held bara að ég hafi ekki áður djammað með henni á afmælinu hennar :)
Veriði nú dugleg að kvitta fólk! það er svo gaman þegar fólk kvittar fyrir sig :)
07. september 2007 klukkan 22:11
Vallý Einars
5 athugasemdir
20ágúst

Skaginn og menningarnótt

Ég ákvað að skella mér uppá Akranes um helgina til að hitta pabba minn og Carmen og auðvitað litla bróðir :) Hann er svo mikill gaur að það hálfa væri nú alveg nóg.
Angela var alveg í essinu sínu þegar tónlist var sett á og dansaði af sér fæturnar nánast. Mikið var nú gott að sjá þau aðeins.

Um kvöldið eftir að ég var komin heim, skellti ég mér í bæinn til að hitta hana Tobbu mína og vini hennar sem voru allt strákar, og það hver öðrum kjánalegri ;) Við kíktum á Amsterdam þar sem fólkið fékk sér eitthvað að drekka en ég var auðvitað bara í kókinu :)
Mikið leið mér líka vel þegar ég vaknaði daginn eftir. Eftir Amsterdam fórum við á Dubliners en þá vorum við nú bara 3 eftir, ég, Tobba og Biggi.
Á leiðinni að bílnum, ég var svo heppinn og náði mér í bílastæði við Iðnskólann, á skólavörðustígnum sáum við engann annan en Gael Garcia Barnel!!! Guð hvað drengurinn er sætur en OMG hvað hann er mikill tittur!! hahaha..

Á sunnudaginn kom svo fyrsta tönnin hennar Angelu í ljós :) mikið varð ég nú glöð. Þær eru samt alveg 2 á leiðinni í viðbót sem ég er búin að sjá.

jæja kominn tími á lunchinn minn

heyrumst
20. ágúst 2007 klukkan 14:15
Vallý Einars
3 athugasemdir
16júlí

Tími til kominn!!

Jæja er ekki kominn tími á smá update??

Ef við byrjum nú á byrjuninni þá leið júní svolítið hratt. Hulda og Almar giftu sig 2.júní og var brúðkaupið fallegt í alla staði. Kirkjan, söngurinn, veislan ... bara allt var fullkomið :) Helgina eftir brúðkaupið skelltum við okkur til Húsavíkur og eyddum helginni þar. 17.júní var æðislegur. Fór með Angelu niður í bæ og hún fékk blöðru, fána og rellu. Svo ekki sé talað um að stelpu skottið fékk líka að smakka eina al-íslenska pulsu ;) oh, hvað henni fannst hún góð. Dagurinn var alveg hreint frábær bara. 

Í lok júní var svo komið að ættarmótinu. Við vorum komnar norður í Dæli rétt eftir hádegi á föstudeginum og það var alveg steik. Það var svo heitt að maður nánast bráðnaði bara á staðnum. Föstudagskvöldið var bara rólegt og mjög skemmtilegt. Fjörið byrjaði svo á laugardeginum. Við vorum eiginlega plötuð til að fara í fótbolta þar sem það var keppni á milli systkina, þ.e. systkina afa. Þannig að 8 fullorðnir einstaklingar úr minni fjölskyldu, aðallega unga fólkið fór í fótbolta keppni. Vil taka það fram að við vorum eina liðið sem var að mestu skipað stelpum en það voru einungis 2 strákar í okkar liði. Ég verð nú að viðurkenna að ég átti nokkra góða kafla í leikjunum sko ;) fékk tattoo eftir boltann á kálfann og svo tæklaði ég frænda minn all svakalega að hann var ekki ennþá búinn að jafna sig á sjokkinu daginn eftir :) Davíð kallaði mig skriðdrekann í vörninni og að ég væri best geymd í enska boltanum bara. Held hann hafi verið pínu hræddur við mig stundum. 
Laugardagskvöldið var líka rosa skemmtilegt. Við fengum okkur svona aðeins í aðra tánna eftir að krakkarnir voru sofnaðir og sumir stigu fallegan tele-tubbies dans :) og aðrir urðu fullari en hægt er að lýsa. 
Vorum komnar frekar snemma heim á sunnudeginum og fegnar að sleppa við þessa svakalegu umferð sem kom í bæinn seinna um kvöldið :)
 hef þetta ekki lengra núna

 
16. júlí 2007 klukkan 21:40
Vallý Einars
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Demanturinn minn

Könnun

Hvort er betra?